Hæðarlínur, tala og nafn færð á pappír og allt í einu get ég haldið á heilu fjalli.
Pappírinn er fisléttur en samt finn ég þyngd fjallsins því uppdrátturinn kemur hugmyndinni um fjallið svo vel til skila og í huganum get ég valið um að sjá fjallið fyrir mér blátt í fjarska eða að tylla mér á tindinn og horfa vítt og breitt.
Landakort draga upp svipbrigði landsins á myndmáli. Kortið er flatt en gefur samt hugmynd um dýpt dala, stærð vatna, lengd fjarða og vekur minningar um eyðifegurð annesja og mikilfengleik fjalla. Uppdrættirnir færa landslag í mælanlegt form með línum og tölum en síðan koma minningar og örnefni og bæta við sögum, lífi og lit.
Þegar ég skoða landakort leggur hugurinn af stað í ferðalög. Þýtur stundum hratt og fer langar vegalengdir á andartaki. Fer sér oftar hægt, staldrar við og ég týni sjálfri mér á milli skemmtilegra örnefna. Vaðalþúfa, Púðurtjörn, Ampapollur, Pyttlur.
Landakortin gera mér kleift að strjúka fingri yfir fjöll og dali, teikna hringi utan um læki og fossa. Þegar ég sker kortin í hluta og brýt þau saman í myndir þá get ég flutt fjöll úr stað og fært heilu stöðuvötnin á milli landshluta eins og ekkert sé